Tæknivarpið cover

Tæknivarpið

Taeknivarpid.is

Tæknivarpið fjallar um tæknifréttir vikunnarog er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og

Tæknivarpið fjallar um tæknifréttir vikunnarog er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og

Huang segir af sér vegna Huang, iPhone Duo og Googlebook umfjöllun

0:00 0:00

Þættir

Huang segir af sér vegna Huang, iPhone Duo og Googlebook umfjöllun 12 Nov 2026

Forstjóri CEO segir af sér, Atli gefur iPhone Duo einkunn og Elmar segir okkur frá Googlebook fartölvunni sinni sem er frekar nett.

Googlebooks fartölvur og Meta dónagleraugu 28 Sep 2026

Meta kynnir alls konar dónagleraugu og tamagotchi-data lyklakippu-sjarma. Google setur varalit á svínið sem Chromebooks eru endurnefnir þær Googlebooks sem er einmitt önnur vara frá Google. Fartölvur fyrir Android snjallsíma eigendur. Og Andri Valur kemur í Duo-klúbbinn. Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.

iPhone Duo, Airpods 5 og ný úr frá Apple 10 Sep 2026

Atli og Gulli gera upp nýafstaðinn Apple iPhone viðburð ásamt Bjarka Guðjónssyni og Andrési Jóns.

Fjórar nýjar Apple vörur og Hey Gúgú hjá Nova 27 Aug 2026

Það er fullt að frétta og Andri, Atli, Elmar og Gulli renna yfir fréttirnar.

Apple hækkar verð, OpenAI eyðir alltof miklu og Elmar kaupir sér Fold 09 Jul 2026

Atli, Elmar og Gulli fara yfir fréttir sumarsins.

Apple WWDC 2026 og Nvidia RTX Spark 10 Jun 2026

Atli, Axel, Gulli og Siggi Fly gera upp WWDC 2026, spjalla um gervigreind og skoða Nvidia RTX Spark.

Apple 50 ára 22 Apr 2026

Atli og Gulli fá góða gesti í þáttinn til að fanga 50 ára afmæli Apple: Andrés Jóns og Bjarka Guðjóns.

Hvernig á að innleiða gervigreind? 05 Mar 2026

Atli og Gulli fá góða gesti í þáttinn til að ræða innleiðingar á gervigreindartólum. Stefán Gunnarsson og Róbert Helgason eru einmitt að halda námskeið í því fyrir Kjarafélaga viðskipta- og hagfræðinga 11. mars og stikla á stóru úr því efni.

MacBook Neo er alger heimalengja 🏈 04 Mar 2026

Það er hátíð á bæ. Atli og Gulli gera upp nýjasta nýtt frá Apple sem var kynnt í vikunni: iPhone 17e iPad Air M4 MacBook Pro með M5 Pro og M5 Max Studio Display og Studio Display XDR MacBook Neo

Þáttur ársins 2025 í tækniheiminum 24 Jan 2026

Feitasti þáttur Tæknivarpsins er lentur - Andri, Atli, Axel, Elmar, Gulli og Sverrir gera upp helstu fréttir og atriði í tækni fyrir árið 2025.

Warner bros hafnar tilboði Skydance og ChatGPT fær app verslun 18 Dec 2025

Atli og Elmar gera upp tæknifréttirnar vikunnar upp.

Netflix kaupir (kannski) Warner Brothers og Steam Machine leikjaborðtölva 08 Dec 2025

Andri, Atli, og Gulli gera upp tæknifréttir mánaðarins: Netflix kaupir WB, Valve kynnir Steam Machine og Alan Dye hættir hjá Apple.

Ætlar IKEA að taka yfir snjallheimilsmarkaðinn? 17 Nov 2025

Andri, Gulli og Sverrir fjalla um tæknifréttir síðustu vikna.

iPhone Air, Meta Ray-Ban Display og Pixel 10 Pro XL 24 Sep 2025

Atli, Elmar og Gunnlaugur fjalla um nýjustu tækni og tæki.

Apple Messa með Andrési Jóns 10 Sep 2025

Atli, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir kynningu Apple á þrennunni þeirra, ásamt góðum gesti honum Andrési Jóns frá Góðum Samskiptum (og Ræðum það... hlaðvarpinu).

Tæknivarpið kemur úr sumarfríi 18 Aug 2025

Tæknivarpið er komið úr sumarfríi og þeir Elmar, Gulli og Sverrir fara yfir tæknifréttir sumars.

Apple WWDC uppgjör, Switch 2 fyrstu viðbrögð og Sýn droppar Stöð2 11 Jun 2025

Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir spjalla um WWDC2025, fyrstu viðbrögð Atli og Gulla af Switch og íslenskt fjarskiptaslúður.

Gervigreindarspjall með Söfu Jemai frá Víkonnekt 30 Apr 2025

Atli Stefán tekur viðtal við Söfu Jemai frá Víkonnekt (https://www.vikonnekt.com/) um gervigreind.

Nintendo Switch 2 með Daníel Nintendo Rósinkrans 23 Apr 2025

Daníel frá Leikjavarpinu kemur í heimsókn til Atla og Gulla og við köfum djúpt í nýkynnta Nintendo Switch 2.

Zelda kvikmynd, Atli kaupir raftæki og nýr iPad 28 Mar 2025

Andri Valur, Atli Stefán, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir fréttir vikunnar og hvað þeir hafa keypt nýlega af tækjum.

Anker er drasl, PlugBug er snilld 26 Feb 2025

Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur gera upp tæknifréttir vikunnar. #plugbug

iPhone SE (eða 16e) og TikTok bann 15 Feb 2025

Andri Valur, Gulli og Sverrir gera upp tæknifréttir síðustu vikna.

Tækniverðlaun ársins 2024 05 Jan 2025

Andri Valur, Atli Stefán, Elmar, Gulli og Kristján Thors gera upp árið 2024 í tækniheiminum.

Heil vika af Mac og tæknifréttir fjórðungsins 07 Nov 2024

Apple tók sér heila viku og þrjú skipti til afhjúpa nýjar Mac tölvur með M4 flögum: iMac 24, Mac mini og MacBook Pro vörulínuna. Svo förum við fréttir þessa ársfjórðungs til að vinna upp það sem við höfum misst af. Stjórnendur þessa þáttar eru Andri, Atli Stefán, Elmar og Gunnlaugur.

Apple veisla - iPhone 16, Airpods 4 og Watch S10 12 Sep 2024

Atli, Gulli og Mosi renna yfir nýjar Apple vörur sem er von á í haust.

Apple orðrómar, nýir iPhone 16 símar og Haustráðstefna 29 Aug 2024

Atli Stefán, Bjarni Ben og Gulli fara yfir orðróma fyrir Glowtime viðburð Apple sem verður 9. september og ræða Haustráðstefnu Advania sem verður í næstu viku. Það verður brátt uppselt þannig hlaupa kaupa!

Google Pixel 9 Pro Fold - stutt og laggott nafn 21 Aug 2024

Við erum komnir úr mjög löngu sumarfríi og byrjum með látum. Fullt af Pixel fréttum, Crowdstrike klúðrið og fleira með Atla, Elmari og Gulla.

WWDC 2024 - Apple uppgvötar gervigreind 18 Jun 2024

WWDC 2024 - uppskera hugbúnaðarþróunar Apple er nýlega afstaðin og Andri, Atli og Gulli gera hana upp.

Hvernig er hægt að nýta sér spunagreind? 07 Jun 2024

Tæknivarpið fékk góða gesti til að ræða hagnýtingu gervigreindar - eða þá nánar tiltekið spunagreindar. Gunnar Reykjalín frá Origo og Binna Borgar frá Datalab. Stjórnandi er Atli Stefán. Þessi þáttur er í boði Origo 🙏

Microsoft sækir á MacBook Air og á gervigreind 01 Jun 2024

Microsoft hélt uppskeruhátíð sína Build nýlega og er búið að dæla út tilkynningum sem Atli og Gulli fara yfir.

Nýjar iPad spjaldtölvur og 121x AI 17 May 2024

Atli, Gulli og Elmar fara yfir fréttir MÁNAÐARINS. iPad Pro M4, iPad Air M2 og Apple Pencil Pro. Google IO.

Amazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á Indlandi 10 Apr 2024

Atli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum: Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið Íslensk tónlist hent útaf TikTok

MacBook Air M3 og DMA tekur gildi 13 Mar 2024

Andri, Atli og Gulli taka um tæknifréttir vikunnar.

Apple Vision Pro sýndarsjáin prófuð og MWC 02 Mar 2024

Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gulli Sverris spjalla um fréttir vikunnar og ferð Elmars til Barcelona á MWC.

Apple Vision Pro komið til Íslands 22 Feb 2024

Atli, Bjarni og Gulli fjalla um tæknifréttir síðustu þriggja mánaða 🫣

Þáttur ársins 2023 15 Jan 2024

Tæknivarpið kallar alla meðlimi út til að gera upp árið 2023 í tækni. Hvað er app árisns? Hver eru bestu tæknikaup ársins? Hver er sími ársins? Það og svo miklu meira í þætti ársins.

Það þarf enginn tíu gígabita á sekúndu 15 Dec 2023

Við fáum góða gesti í Tæknivarpið þá Ingvar Bjarnason frá Mílu og Jón Helgason (Nonna) frá Eldey. Þeir héldu einmitt fyrirlestur fyrir fjarskipta-faghóp á vegum Ský í síðustu viku þar sem fjallað var um 10 gígabita ljósleiðara fyrir heimili. Þarf einhver 10 gígabita á sekúndu?? Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

Nothing hakkar Apple og gervigreindarnæla 15 Nov 2023

Nothing er búið að hakka Apple Messages þannig að það virki á Android símanum sínum Phone (2). Humane kynnir gervigreindarnælu "AI pin" sem kostar 800 USD og kemur kannski einhvern tímann út.

Hryllilega hraðar M3 flögur og Meta áskrift 10 Nov 2023

Apple kynnti nýja línu af flögum: M3, uppfærðar MacBook Pro og iMac 24. Stærsta fréttin er samt mögulega nýr litur 🖤 Qualcomm er með nýja flögulínu sem heitir Oryon sem á að keppa beint við Apple Silicon, og er hraðari en M3 en notar talsvert meira rafmagn (líklega 2x!). Hringdu lenti í hrappara sem náði að svíkja út rafræn skilríki hjá öðrum manni, en tilkynnti hann og náði að koma í veg fyrir mikinn skaða. Meta býður nú upp á áskriftir fyrir Facebook og Instagram - greiddu €15 á mánuði og slepptu auglýsingum. Ætlar þú að kaupa?

Framtíðin er 5,5G, Meta Quest 3 og snjallsólgleraugu 21 Oct 2023

Atli fer yfir framtíðina í farnetum og segir frá ferð sinni til Dubai á 5.5G ráðstefnu Huawei. Meta gefur út nýja sýndarsjá og snjallsólgleraugu. Pixel 8 dómar raðast inn og eru nokkuð jákvæðir.

Pixel 8 símar, Pixel Watch 2 og Vivaldi á iOS 06 Oct 2023

Vivaldi er loksins kominn út á iOS fyrir iPhone. Vodafone eflir samtengingar í Evrópu sem gagnast tölvuleikjaspilun. Kringlan gefur út rafræn gjafakort fyrir Wallet-lausnir Apple og Google. iPhone 15 vandamál halda áfram - en eru þetta raunverulega vandamál? Google kynnti nýja síma og snjallúr og Elmar er búinn að panta sér uppfærslur.

Heitir iPhone-símar og kaldir Android-símar 27 Sep 2023

Það eru komin verð á iPhone 15 og iPhone 15 Pro á Íslandi en þeir virðast vera ofhitna aðeins. Pixel 8 og 8 Pro eru búnir að leka. Ljósleiðarinn fer líka í 10 gígabita. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Freyr og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

iPhone nú í títan og umhverfisvænari Apple 14 Sep 2023

Atli Stefán og Gunnlaugur fá Bjarka Guðjónsson og Pétur Jónsson í settið til að ræða tímamóta kynningu Apple á iPhone 15 línunni, Watch Series 9 og Watch Ultra 2. Þessi þáttur er í boði TechSupport sem styður íslensk fyrirtæki og stofnanir í upplýsingatækni.

iPhone 15 orðrómar, Samsung M8 skjár og vöruskil 06 Sep 2023

Andri, Atli og Gulli fara yfir orðróma fyrir kynningu Apple í næstu viku. Orðið á götunni er að við fáum eftirfarandi: iPhone 15 með USB-C Apple Watch S9 Apple Watch Ultra 2 Apple Airpods Pro 2 með USB-C Við fjöllum líka um Samsung Smart Monitor M8 og Mac Studio kaup Atla. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

Míla kynnir 10x, Playstation Portal og Zoom lokar á fjarvinnu 03 Sep 2023

Atli, Elmar og Gulli gera upp fréttir vikunnar í tækni: 10 gígabitar til heimila hjá Mílu Nýr framkvæmdastjóri hjá Ljósleiðaranum Playstation Portal er flopp? Sony PS+ hækkar í verði Zoom kallar inn starfsfólk úr fjarvinnu ATHUGIÐ Elmar er starfsmaður Mílu og Atli er ráðgjafi Mílu. Þessi þáttur er í boði Tech Support.

Tæknivarpið snýr aftur - Microsoft Loop og Limir í leikjum 19 Aug 2023

Atli Stefán (kvefaður), Bjarni Ben Loopari og Elmar Torfa ræsa Tæknivarpið þetta haustið og við lofum góðri umræðu um limi í tölvuleikjum og nýjasta nýtt í samvinnuhugbúnaði. Þessi þáttur er í boði TechSupport.is

Threads, forkæling bíla og 5K tölvuskjáir 19 Jul 2023

Atli, Gulli og Sverrir taka frí frá sumarfríinu og renna yfir tæknifréttir sumarsins. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

WWDC2023 - Apple Vision Pro, MacBook Air 15, Mac Pro og öll stýrikerfin uppfærð 08 Jun 2023

Við rennum yfir lykilræðu Apple á WWDC 2023 ásamt Pétri Jónssyni og Bjarka Guðjónssyni - okkar eigið Pro-teymi ❤️ Stjórnendur eru Atli og Gulli.

WWDC upphitun og fleira. 02 Jun 2023

Viðfangsefni vikunnar er upphitun fyrir WWDC viðburð Apple, friðhelgi einkalífs og fleira. Við metum einnig hvort Gulli sé að reyna að kveikja í bílskúrnum heima hjá sér. Umræðupunktar (e. Show notes) Inngangur Rafhjólahornið Tenways rafmagnshjól IPTV umræðan Sýn stefnir Jóni Einari Ad-tech og friðhelgi einkalífs Bandaríkjamenn geta keypt frítt sjónvarp með auglýsingum Starfsmenn Ring virtu friðhelgi einkalífs notenda að vettugi Meta kynnir Quest 3 Verð - $499 Neytendahornið Gulli prófaði Gripið og Greitt Tesla hornið. WWDC upphitun Nýjar Mac tölvur væntanlegar. Apple Reality Pro concept Lokaorð Kostendur: Nuki á Íslandi: Nuki Opener hjálpar þér að snjallvæða dyrasímann, sem gagnast öllum sem vilja hleypa fjölskyldumeðlimum og öðrum getum inn um útidyrahurðina hvar og hvenær sem er. Hlustendur Tæknivarpsins fá 10% afslátt af Nuki Opener og/eða Nuki Smart Lock Pro með því að slá inn kóðann taeknivarpid. TechSupport fyrir að lána okkur upptökustað. Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason, Gunnlaugur Reynir Sverrisson og Sverrir Björgvinsson.

Microsoft Build, Hot Desking og Motorola ThinkPhone 24 May 2023

Skýrsla Fjarskiptastofu um fjarskiptamarkaðinn kom út um daginn og Nova gerði hana upp. Microsoft Build var að klárast og setti met í því hversu oft stafirnir A og I voru sagði upphátt. Tæknivarpið fær að prófa Gripið & Greitt og Gulli verslar í Næra. Fujifilm gaf út nýja myndavél og Atli ætlar að panta. Netflix herjar á samnýtingu aðganga og byrjar í BNA. HBO Max verður.. Max. Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

Tengd hlaðvörp