Trivíaleikarnir
Daníel Óli
Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
58. Halloween-leikarnir (þemaþáttur)
Þættir
Fyrsti Halloween þátturinn í sögu Trivíaleikanna! Djöfullegur Daníel settist niður með liðunum tveimur og skaut hátt í 50 alblóðugum og hryllilegum hrekkjavökuspurningum á þau án afláts. Andsetinn Arnór og Jarðafarar-Jón mættu Myrkrahöfðingjanum Magnúsi og Martraðar-Marínu í stúdíói sem sett var upp í drungalegri pyntingardýflissu á ónefndum stað einhvers staðar á hálendi Íslands. Hlustaðu strax - hér er hrekkjavaka eða Halloween eins og þú hefur aldrei kynnst henni áður. Komdu þér fyrir, helltu þér upp á kaldann drykk og hlustaðu á fyrsta Halloween þáttinn okkar! Keppendur: Arnór Steinn, Magnús Hrafn, Jón Hlífar og Marín Eydal.
Jæja sumarfríið er á enda og Trivíaleikarnir snúa aftur með hvelli! Við droppuðum líka 9 þáttum á Patreon í sumar - tékkaðu á því og þig mun aldrei skorta þátt. Að þessu sinni kíktu Kristján, Ingi, Öddi og Heiðdís María í stúdíóið í einn löðrandi sveittan þátt af smáþekkingu og fróðleik. Hvaða evrópska höfuðborg stendur hæst yfir sjávarmáli? Hvers konar drykkur er Chablis? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Einnig settum við upp auglýsingu fyrir umsóknum fyrir þá sem vilja vera með í þáttunum, þú finnur hlekk á umsóknarformið inni á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net. Keppendur: Heiðdís María, Ingi, Kristján og Haraldur Örn.
Já það er smá sumarfrí í gangi hjá okkur í Trivíaleikunum og því enginn þáttur í júlí - en það er aldrei sumarfrí á Patreon og því bjóðum við hlustendum í staðinn upp á einn af nýju Patreon þáttunum okkar til að prófa. Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Marín Eydal kíktu öll í stúdíóið til Daníels og spreyttu sig á nýju Refskákinni en hún samanstendur af hraðaspurningum og þremur umferðum af "Einvíginu" - Það hljómar bara eins og ansi góður kokteill ef þú spyrð okkur!
Já það er komið að fimmtugasta og sjötta þátt Trivíaleikanna og aldrei verið mikilvægara að hlusta á allan þáttinn til enda en nú. Það sauð upp úr og ofan í stúdíóinu en að þessu sinni skellti Öddi sér í dómarasætið og Jón Hlífar, Daníel, Ingi og Heiðdís María öttu kappi. Hver er hinn gríski guð víns? Í hvaða mánuði forna tímatalsins er allra heilagra messa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Daníel Óli, Jón Hlífar, Ingi & Heiðdís María.
Já það er komið að fimmtugasta og fimmta þætti Trivíaleikanna - afsakið hve seint þessi þáttur kemur út, það hefur verið erfitt að ná tökum upp á síðkastið. Shoutout líka á nýja sponsorinn okkar Frisbígolfbúðinni - tékkið á þeim í Glæsibænum! Í þennan kyngimagnaða þátt mættu þau Arnór, Heiðdís, Ingi og Bjarni Halldór í sinn annan þátt. Hver er söluhæsta breiðskída Kendricks Lamar? Hvaða Studio Ghibli mynd varð innblásturinn að útliti Youtube rásarinnar Lofi Girl. Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Bjarni Halldór.
Fimmtugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, í stúdíóið mættu Daníel Óli, Kristján, Ingi og splunkunýr keppandi úr fortíðinni, Bjarni Halldór sem keppti við Daníel, Arnór og Inga eitt sinn í Gettu Betur en Arnór Steinn skellti sér einmitt í dómarasætið að þessu sinni og því um sannkallaða endurfundi að ræða. Í hvaða landi er að finna höfuðborgina Dhaka? Fyrir hvað stendur skammstöfunin BSÍ? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Daníel Óli, Kristján, Ingi & Bjarni Halldór.
Já það er komið að 53. þætti Trivíaleikanna en að þessu sinni kíktu þeir Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Öddi í sjóðblautt stúdíó hlaðvarpsins. Hvaða tveimur löndum í Suður-Ameríku á Brasilía ekki landamæri að? Hvað hefur hver spilari mörg spil á hendi þegar spilaður er skítakall með hefðbundnum spilastokki? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Öddi, Ingi og Jón Hlífar.
Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon hjá okkur, þar getið þið fengið tugi þátta fyrir litla 8$.
Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears, MP3 spilarar og DVD diskar komu víða við sögu. Hver var Region kóði Evrópu á DVD diskum? Hvaða goðsagnakennda lag Backstreet Boys var fyrsta lagið sem niðurhalað var af Napster? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Jón Hlífar.
Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Ingi, Haraldur Örn, Þorri Líndal og Andrea.
VIÐ ERUM AÐ GEFA ÚT JÓLADAGATAL Í ÁR! Dagatalið inniheldur sjö þætti af Trivíaleikunum sem byrja að droppa 1. desember nk. og svo droppar nýr þáttur áfram á 3-4 daga fresti alveg fram að Jólum þegar lengri úrslitaþáttur droppar á aðfangadagsmorgun! Um er að ræða fyrstu útsláttarkeppni í sögu Trivíaleikanna, átta lið tóku þátt með sextán keppendum, í hverri umferð detta út tapliðin og sigurliðin halda áfram þar til einungis tvö lið standa eftir og mætast í úrslitaþættinum á aðfangadag. Ekki missa af besta dagatalinu Jólin 2025 - farðu inn á Patreon vef okkar til að finna dagatalið (það þarf EKKI að vera í áskrift til að kaupa það). Þar undir Collections ættiru að sjá það, þegar þú hefur keypt dagatalið hefuru aðgang að því hvenær sem er og getur hlustað á þættina þegar þeir byrja að droppa á netið frá og með 1. desember þegar fyrsta umferð átta liða úrslitanna hefjast! Dagatalið finnuru hér: Jóladagatalið 2025. Liðin eru eftirfarandi: Marín Eydal & Arnór Steinn Hnikarr Bjarmi & Alvin Smári Stefán Geir & Öddi Valdi & Tinna Kristján & Jón Hlífar Alvin Máni & Tommi Heiðdís María & Ingi Magnús Hrafn & Arnar Tómas Þættirnir droppa svona: 1. Umferð átta liða úrslit droppa þann 1. desember 2. Umferð átta liða úrslit droppa þann 5. desember 3. Umferð átta liða úrslit droppa þann 9. desember 4. Umferð átta liða úrslit droppa þann 13. desember Fyrri undanúrslit droppa þann 17. desember Seinni undanúrslit droppa þann 21. desember Úrslitin sjálf droppa svo þann 24. desember
Við fögnum 50 þáttum af Trivíaleikunum með fyrsta live þættinum okkar, sem tekinn var upp á Arena í Kópavogi þann 17. okt 2025 fyrir framan fullan sal. Við erum ennþá agndofa yfir móttökunum sem við fengum - takk allir sem mættu og allir sem hlusta og gera okkur kleift að halda þessari veislu gangandi. Liðin tvö voru mynduð af tveimur af íkonískustu liðum Trivíaleikanna frá upphafi: Marínu og Arnóri ásamt Jóni og Kristjáni. Daníel skellti sér í dómarasætið og spurði liðin spjörunum úr en útkoman varð einn lengsti og skemmtilegasti þáttur í sögu hlaðvarpsins! Hver er fjölmennasta borg heimsálfunnar Afríku? Fyrir hvað stendur skammstöfunin WiFi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Í gegnum þáttinn er einnig að finna Pub Quiz sem við vorum með fyrir salinn en þú kæri hlustandi getur tekið þátt í því heima fyrir sömuleiðis með litlu meira en hvítu blaði og penna. Myndaspurningarnar sem komu má finna með því að leita að "þáttur 50" á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net. Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Jón Hlífar og Kristján.
Já þið lásuð rétt kæru hlustendur, við fengum stórmeistarana Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson úr Pitturinn Podcast til að kíkja við í stúdíóið með tilheyrandi gleðskap og formúlufróðleik. Kristján Einar og Kristján úr Trivíaleikunum mynduðu lið og Bragi ásamt okkar allra besta Inga gáfu þeim góða samkeppni. Hvað heitir sidekick Radioactive Man í sjónvarpsþáttunum The Simpsons, hvað eru Bee Gees bræður margir? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Leiðrétting: Spurningin í Náttúra og Vísindi um laxa hefði átt að vera ógild - þannig að 5 stigin fyrir spurninguna um laxveiði áttu ekki að fara til Braga og Inga - blessunarlega hafði þessi spurning ekki áhrif á úrslit þáttarins. Keppendur: Kristján, Ingi, Kristján Einar og Bragi Þórðarson.
Já þú last rétt við tökum upp 50. þátt Trivíaleikanna live á Arena í Kópavogi þann 17. október klukkan 20:00 ekki láta þig vanta á þennan stórviðburð!
Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku, illska elur lygar"? Hvað hétu ræningjarnir þrír í leikverkinu um Kardemommubæinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Fertugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni brá hópurinn sér í stúdíó Sánu að nýju og okkar allra besti Kristján settist í fyrsta sinn í spyrils- og dómarasætið. Tvö þungarvigtarlið tókust á í kjölfarið en Daníel og Ingi mættu Arnóri og Jóni í títanískum hamfaraslag vitsmuna og fræðimennsku. Ekki missa af þessari veislu. Hvaða leikari fór með hlutverk Blade í Blade þríleiknum. Frá hvaða heimsálfu koma tómatar upprunalega? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Daníel Óli, Arnór Steinn, Jón Hlífar og Ingi.
Já það er komið að fertugasta og sjötta þætti Trivíaleikanna og að þessu sinni var þátturinn algjör negla. Marín Eydal og Daníel Óli mynduðu stórskemmtilegt teymi sem tókst á við hörkusterkt lið Ödda og Kristjáns á meðan að Arnór Steinn vermdi þáttastjórnendasætið. Júlí markar tímamót í sögu Trivíaleikanna þar sem við munum héðan í frá vera að gefa út þrjá þætti í hverjum mánuði og lækkuðum einnig áskriftargjaldið okkar á Patreon úr 10$ í 8$. Það þýðir að allir sem eru í áskrift munu vera að fá þrjá þætti í hverjum mánuði fyrir litla 8$. Ekki missa af þessari veislu, kíktu inn á www.patreon.com/trivialeikarnir og vertu með! Hvað heitir síðasta kvikmyndin í Dollars trilógíunni? Úr hvaða stöðuvatni rennur Laxá í Aðaldal? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Daníel Óli, Haraldur Örn og Kristján.
Já þú last rétt! Við erum að fjölga fjölda þátta af Trivíaleikunum sem við gefum út í hverjum mánuði og lækka áskriftargjaldið sömuleiðis, sturlað! Hlustaðu á kynninguna, skelltu þér á Patreon og vertu með okkur í veislunni!
Við vildum leyfa ykkur öllum að prófa að hlusta á einn af þeim fjölmörgu frábæru þáttum sem við erum að bjóða upp á inni á Patreon þessa dagana. Kíktu á Patreon vef okkar, komdu í áskrift og fáðu hátt í 20 þætti sem eru þar inni nú þegar! Heyrst hefur að áskriftargjaldið hafi lækkað á síðustu dögum, mæli með að tékka á því! Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ingi & Haraldur Örn.
Fertugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján í gamla góða stúdíó 9A seint á þriðjudagskvöldi. Chi-húa-húa og Lanmótið Lana Del Reykjavík - ekki missa af þessari veislu. Nafn hvaða eftirréttar merkir á ítölsku „eldaður rjómi.” Hvaða land á flesta páfa á eftir Ítalíu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján.
Fertugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Kristján og Hnikarr þeim Inga og Ödda í títanískum reginslag í gamla góða stúdíói 9A. Ekki missa af þessari skyrþöktu veislu! Hver var fyrsta skáldsagan sem var skrifuð í allri heild sinni á ritvél? Hvaða tæknirisi framleiddi fyrsta örgjörvann sem var seldur almenningi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Ingi, Hnikarr Bjarmi og Öddi.
Fertugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María í upprunalega stúdíó hlaðvarpsins, hið yndislega Stúdíó 9A. Ekki missa af þessari Imodium veislu. Hvert er fjölmennasta landlukta land heims? Hvað gefur verðmætasta prikið í Míkadó mörg stig? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María
Já þið lásuð rétt, það er loksins komið að þemaþætti! Að þessu sinni vorum við með kosningu á Instagram þar sem hlustendur sendu inn tillögur og níundi áratugurinn (80's) var valinn úr þeim uppástungum. Magnús Hrafn og Jón Hlífar tóku á móti Daníel Óla og Kristjáni í gamla góða stúdíó 9A en í dómarasætið brá sér okkar allra besti Arnór Steinn. Fyrir hvaða Bond kvikmynd samdi Duran Duran þemalag? Hve langur var Berlínarmúrinn? Hver lék eltihrellinn ógurlega í Fatal Attraction? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Daníel Óli, Jón Hlífar, Kristján og Magnús Hrafn.
Já þið lásuð rétt - við ætlum að leyfa ykkur að prófa einn af Patreon þáttunum okkar frítt. Heima Quiz er í rauninni Pub Quiz sem þú getur spilað heima hjá þér eða hvar sem þú ert. Þú getur ýmist keppt á móti Inga og Kristjáni eða keppt við maka, vin, foreldra eða hvern sem er - þú ræður algjörlega ferðinni. Daníel ber upp 16 flokkaspurningar, eina textabók og þríþraut og þú svarar á blað (við bjóðum upp á blað sem þú getur prentað út á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net) og svo förum við yfir spurningarnar og svörin í lokin. Hefur þig alltaf langað að prófa að spreyta þig á Trivíaleikaspurningunum sjálfur? Langar þig að skora hærra en keppendur Trivíaleikanna? Núna er tækifærið, helltu þér upp á drykk, komdu þér fyrir með blað og byrjaðu að svara!
Fertugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þennan kyngimagnaða þátt mætti Haraldur Örn frá hlaðvarpi Fótbolti.net þar sem hann er með spurningakeppnisþáttinn "Fótbolta nördinn." Í liði með Haraldi var enginn annar en okkar allra besti Stefán Geir en á móti þeim tveimur keppti eitt kunnuglegasta lið hlaðvarpsins "Heiðingi" eða Heiðdís María og Ingi. Hvaða þrjú ríki kallaði George W. Bush, Öxulveldi hins Illa? Hvaða norræni rithöfundur skrifaði ævintýrið um Snædrottninguna? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Stefán Geir, Haraldur Örn, Heiðdís María og Ingi.
Fertugasti þáttur Trivíaleikanna en að þessu mættu Marín Eydal og Ingi þeim Kristjáni og Hnikarri sem létu vel um sig fara í Stúdíó Frystikistu. Hvert er enska og þekktara heiti eitursins Kristspálma? Hvaða íslendingur lék stórt hlutverk í lokaseríu sjónvarpsþáttanna um Dexter? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Ingi, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
Já þið lásuð rétt! Þann 05. desember 2024 klukkan 21:00 verða Trivíaleikarnir með Pub Quiz í Arena Kópavogi. Hlustaðu á kynninguna og ekki láta þig vanta á fimmtudaginn næsta!
Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í einhverjum eftirminnilegasta þætti hlaðvarpsins. Nafn hvaða pastategundar merkir einfaldlega „litlar tungur” á ítölsku? Hvað byrja spilarar með mörg spil á hendi í Ólsen Ólsen? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Áríðandi tilkynning: Við viljum minna ykkur öll á að Trivíaleikarnir verða með fyrsta Pub Quizið í sögu hlaðvarpsins þann 5. desember nk. í Arena (turninum) í Kópavogi klukkan 21:00. Ekki missa af þessari veislu og láttu sjá þig á Arena 5. des! Keppendur: Vilhelm Anton, Arnór Steinn, Kristján og Ingi.
Þrítugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti stórgott lið Jóns Hlífars og Kristjáns sterku liði Arnórs Steins og Inga í Stúdíó Sánu. Ekki missa af þessari rjúkandi heitu skemmtun af hlaðvarpsþætti, komdu þér fyrir, ýttu á play og njóttu vel. Hvaða land sem liggur ekki að sjó (er landlukt) er stærst allra landluktra landa að flatarmáli? Hvers konar dýr er persónan fræga Tom Nook sem kemur fyrir í Animal Crossing tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Jón Hlífar og Kristján.
Þrítugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni hefur lukkudýr hlaðvarpsins snúið aftur í framhaldsþætti sem allir hafa beðið eftir! Marín Eydal og Arnór Steinn tókust á við sterkt lið Ástrósar Hindar og Kristjáns í gígantískum vitsmunaslag í hinu gamla og góða stúdíói 9A. Hvert er algengasta orðið í enskri tungu? Hvert er háværasta dýr jarðarinnar? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ástrós Hind og Kristján.
Þrítugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján til leiks í stúdíó Sána. Ekki missa af þessari veislu og hlustaðu á hundrað mismunandi leiðir til að mjálma vitlaust. Undir hvaða listamannsnafni er tónlistarmaðurinn Richard Starkey betur þekktur? Hvað er Cosa Nostra? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
Þrítugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna en Daníel er mættur aftur og tók á móti Stefáni Geir, Jóni Hlífari, Kristjáni og Inga í meðalheitu stúdíó Sána. Er ælubogi færeyskt orð yfir hringtorg eða regnboga? Hvaða land hefur flesta staði á heimsminjaskrá? Hvaða áfengi drykkur er notaður þegar búið er til Sangria? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Stefán Geir, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.
Þrítugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, Daníel er ennþá týndur en það er víst góð ástæða fyrir því samkvæmt spurningahöfundi þáttarins Arnóri Steini. Að þessu sinni mættu Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi í löðrandi heitt stúdíó undir súð í Grafarvoginum þar sem spænskunni var slett óspart og ekkert var tilsparað. Í hvaða borg er að finna hina frægu Karlsbrú? Hvaða fyrirtæki kom með fyrstu stafrænu myndavélina á almennan markað árið 1999? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi.
Þrítugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni brá Arnór Steinn sér í dómarasætið þar sem Daníel er stunginn af út á land yfir sumarið. Kristján og Jón Hlífar tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu í löðrandi sveittu stúdíói 33 þar sem engu var til sparað. Hvers konar matvæli er Paneer? Hvernig eru skeljarnar á litinn sem skjóta má á fremsta ökumann í Mario Kart tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María.
Þrítugasti og annar þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni er það þemaþáttur um tíunda áratuginn. Arnór Steinn og Daníel Rósinkrans fara um allar trissur tíunda áratugarins er þeir taka á móti Jóni Hlífari og Kristjáni í 90's slag sem lætur Jean-Claude van Damme líta út eins og nýfæddan kettling frænku þinnar. Hver vinanna í Friends átti flestar talaðar línur? Hver Kryddpíanna hætti fyrst í hljómsveitinni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Daníel Rósinkrans, Jón Hlífar og Kristján.
Þrítugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í stúdíó 9A mættu að þessu sinni meistararnir Einar og Óli úr hlaðvarpinu vinsæla Tveir Fellar. Einar gekk til liðs við okkar allra besta Inga og Óli plús Kristján mynduðu saman ofurliðið "Króli." Í þessari viku opnuðum við einnig fyrir áskrift að hlaðvarpinu inni á Patreon.com/trivialeikarnir fyrir þá sem vilja fá fleiri þætti og meira efni frá Trivíaleikunum - endilega tékkið á því! Hvaða ógeðfellda hráefni er í Sardinska ostinum Casu Martzu? Hvaða spendýr má sjá í skjaldarmerki Hufflepuff heimavistar í sögunum um Harry Potter? Hvaða þjóð hefur unnið fleiri verðlaun á Vetrarólympíuleikum en nokkur önnur? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Ingi, Kristján, Einar og Óli Þorbjörn.
Stærsta tilkynning í sögu Trivíaleikanna! Vertu með og komdu í áskrift: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Þrítugasti þáttur Trivíaleikanna! Í þennan stórmerkilega tímamóta þátt mættu þau Ástrós Hind, Magnús Hrafn, Ingi og Arnór Steinn í stúdíó 9A og létu til sín taka. Hver er fjölmennasta þjóðin sem hefur aldrei unnið til verðlauna á Ólympíuleikum? Hver er mest seldi PEZ karl allra tíma? Hvaða frumefni og gastegund er notuð til að vernda bandarísku stjórnarskrána? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Magnús Hrafn.
Tuttugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti atvinnu- og landsliðsmaðurinn í handbolta Donni Kristjáns ásamt góðvini sínum Tomma í stúdíó 9A. Á móti þeim tóku reynsluboltarnir Kristján og Ingi í hörkuslag þar sem reynt var á nýtt fyrirkomulag nokkurra spurningaliða. Hver er refsingin fyrir að gleyma að segja „ólsen” í spilinu Ólsen Ólsen? Bílamerki hvaða bílategundar er ekki bara fyrsti bókstafurinn í nafninu heldur er einnig talið tákna handaband kaupanda og seljanda bílsins? Hver var síðasti forsætisráðherra Íslands til að útskrifast úr Menntaskólanum við Sund? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Ingi, Donni og Tommi.
Tuttugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Til leiks mættu Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind í stúdíó 9A. Hver var Borgarstjóri Reykjavíkur áður en að Jón Gnarr tók við embættinu árið 2010? Hvert er algengasta fyrsta eiginnafn kvenna á Íslandi sem hefst á bókstafnum „E”? Af hvers konar dýri er kasmírull unnin? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
Tuttugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna og fyrsti bónusþáttur í sögu hlaðvarpsins! Í bónusþáttum leyfum við okkur að breyta út af venjulega formattinu og prófa nýja dagskrárliði, ný þemu og algjörlega ný formött. Að þessu sinni var Jólaþema tekið fyrir og mættu til leiks bræðurnir Valdi og Bjarki en þeir tóku á móti Kristjáni og Heiðdísi Maríu í Jólaslag vitsmuna og kímni þar sem miklu meira en Macintoshi og piparkökum var tortímt. Hver er mest selda Jólasmáskífa allra tíma? Hvaða skrápdýr vill Ómar Ragnarsson fá í skóinn í laginu Gefðu mér gott í Skóinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Valdi, Bjarki, Kristján og Heiðdís María.
Tuttugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Marín Eydal og Arnór Steinn þeim Kristjáni og Hnikarri Bjarma í títanískum slag vitsmuna og kómedískrar fagurfræði. Hvaða tvö tónskáld sömdu The Sound of Music? Hvaða söngkona átti smellinn Milkshake sem kom út árið 2004? Sýklalyf eru stundum kölluð fúkkalyf en hvað þýðir orðið „fúkki"? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
Tuttugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Við opnum þáttinn með glænýju og geggjuðu þemalagi en að þessu sinni mættu reynsluboltarnir Ingi og Kristján til leiks á móti Leifi úr 20. þætti og bróður hans Bjarka. Hvaða rómantíska gamanmynd átti upprunalega að heita 3000? Um hve margar gráður hallar skakki turninn í Pisa? Hvaða spænski listamaður hannaði vörumerki Chupa Chups sleikjóa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Bjarki, Ingi, Kristján og Leifur.
Tuttugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Jón Hlífar og Marín Eydal tóku á móti Ástrós Hind og Kristjáni í rosalegum þætti af hlaðvarpinu skemmtilega. Hvaða hljómsveit ber skammstöfun sem stendur fyrir Bangtan Sonyeondan? Hver var fyrsta þjóðin til að senda kött út í geim? Hvers konar baunir eru notaðar í hefðbundið mexíkóst Chili con carne? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Ástrós Hind, Jón Hlífar, Kristján og Marín Eydal.
Tuttugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna sem útvarpað var í beinni á Útvarp Mosfellsbæ sem partur af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Arnór Steinn og Ástrós Hind tóku á móti Inga og Kristjáni í hörkuþætti þar sem snert var á einu og öðru úr heimabæ hlaðvarpsins. Hvert er lengsta fljót Bandaríkjanna? Hvaða tæki skapaði Alexander Graham Bell til að bjarga lífi James A. Garfield forseta Bandaríkjanna? Í upphafsatriði hvaða sjónvarpsþátta grípa aðalpersónurnar epli sem dettur af skilningstrénu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
Tuttugasti og annar þáttur Trivíaleikanna sem og annar þemaþátturinn í sögu hlaðvarpsins. Að þessu sinni var þemað tölvuleikir sem þýðir að allar spurningar þáttarins snúast um tölvuleikjasenuna en í þáttinn mættu tveir fyrrum keppendur Arnór Steinn og Marín Eydal en einnig Óli Jóels og Daníel Rósinkrans frá Gametíví. Hvort er Dartrix pokémon eða stinningarlyf? Hvaða svindlkóða notuðu spilarar til að fá pening í upprunalega Sims leiknum? Hve mörg rauð ljós blikkuðu í hinu hrikalega Red Ring of Death sem Xbox eigendur óttuðust meira en allt? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Óli Jóels og Daníel Rósinkrans.
Tuttugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þessum þætti mættu gömlu reynsluboltarnir til leiks í stúdíó 9A þegar Jón Hlífar og Magnús Hrafn tókust á við Kristján og Inga í einhverjum rosalegasta þætti hlaðvarpsins hingað til. Frá hvaða landi kemur rétturinn Massaman Karrí upprunalega, í hvaða blóðflokki eru fæstir íslendingar, hvaða ár komu leikjatölvurnar Playstation 3 og Nintendo Wii fyrst út? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Jón Hlífar, Magnús Hrafn, Kristján og Ingi.
Tuttugusti þáttur Trivíaleikanna en í þennan tímamótaþátt mættu tveir nýjir keppendur til leiks Valdi og Leifur frá borðspilahlaðvarpinu Pant vera Blár! Kristján og Ástrós mættu til leiks á ný eftir svekkjandi endi á síðasti þætti og freista þess hér að sækja sigur í hinu goðsagnakennda stúdíó 9A. Hvað heitir mennski strákurinn í sögunni um Bangsímon? Hvað kallast túnfífill eftir að hann hefur afblómgast? Hvaða kvikmynd frá tíunda áratugnum gerði línuna „Hasta la vista, baby" ódauðlega í poppkúltúr? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Kristján, Ástrós Hind, Þorvaldur og Leifur.
Nítjándi og einn allra besti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu tveir nýir keppendur til leiks, Marín Eydal frá Gametíví og Ástrós Hind frá hlaðvarpinu Listin og Lífið. Með Marínu í liði var okkar allra besti Arnór Steinn og með Ástrós í liði var okkar einnig allra besti Kristján. Er Bambi Elínmundur löglegt nafn samkvæmt Mannanafnanefnd? Hvað heitir erkióvinur pabba Ronju Ræningjadóttur? Safi hvaða ávaxtar er notaður í kokteilinn „Screwdriver?" Hvaða frægi leikari talar fyrir persónuna Sideshow Bob í sjónvarpsþáttunum vinsælu The Simpsons? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
Átjándi þáttur Trivíaleikanna og sá fyrsti á árinu 2023. Í þessum frábæra þætti mættu tvö lið til leiks í Mekka Trivíaleikanna í stúdíó 9a. Kristján og Hnikarr Bjarmi tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu eða Heiðingja eins og liðið er orðið þekkt nú til dags. Í hvaða ríki Bandaríkjanna er að finna Miklagljúfur? Hvaða leikkona talaði fyrir gervigreindina í kvikmyndinni Her frá árinu 2013? Hvort eru fleiri umferðarljós á höfuðborgarsvæðinu eða bílastæði í bílastæðahúsi Hörpu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Hnikarr Bjarmi, Ingi og Heiðdís María.