Þú veist betur cover

Þú veist betur

RÚV

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Kapítalismi

0:00 0:00

Þættir

Kapítalismi 04 Jul 2026

Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt líf okkar. Frá Adam Smith og iðnbyltingunni, í gegnum kommúnismann sem reis upp sem andsvar, og baráttuna gegn auðhringjum eins og Standard Oil í upphafi 20. aldar. Gylfi fer yfir hvernig Ísland og Vesturlönd endaðu með blandað hagkerfi kapítalisma ásamt velferðarkerfi og í lokin ræðum við áhyggjuefni nútímans, vald risafyrirtækja yfir samfélagsumræðunni, takmarkaðar auðlindir jarðar, og hvort kerfið sem við búum við í dag eigi sér framtíð. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gylfi Magnússon

Sjórinn - 2. hluti: Breytingar og framtíðin 04 Jul 2026

Hafið er að hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, skoðum við þessar tvær breytingar í hafinu og hvers vegna þær eru ekki það sama, þó þær eigi sér sömu rót. Steingrímur rifjar upp síldarbrestinn 1965 og hvernig erfitt getur verið að greina slíkan náttúrulegan breytileika frá hnattrænni hlýnun af manna völdum. Við förum yfir sérstöðu Íslands í djúpsjávarmyndun heimshafanna, hvað gerðist þegar fyrsta haffræðiferðin var farin árið 1872, og hversu lítill hluti hafsins hefur í raun verið rannsakaður. Í lokin veltum við fyrir okkur hvort Íslendingar séu að forgangsraða hafrannsóknum í samræmi við það hversu mikið þjóðin á undir auðugu lífríki sjávar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

Sjórinn - 1. hluti: Hvernig hafið virkar 04 Jul 2026

Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið? Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til að fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur, og hvernig þrýstingurinn á botninum er svo gríðarlegur að mælitæki þurfa að þola hann sérstaklega. Steingrímur fer með mig í gegnum hafstraumana, hvað drífur Golfstrauminn, hvernig jarðsnúningurinn sveigir hann, og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Íslandsstrendur er einstök á heimsvísu. Við endum á því hvernig orka og næringarefni flæða um þetta risastóra kerfi, og hvers vegna stór hluti hafsbotnsins er einfaldlega flatur eyðimörk. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

Bensín 04 Jul 2026

Olía er svarta, þykka efnið sem kemur djúpt úr jörðinni og endar einhvern veginn í öllu sem við gerum en hvernig gerist það í raun? Í þessum þætti fæ ég til mín Brynjólf Stefánsson, sem starfaði í áratug í olíuviðskiptum hjá Morgan Stanley í New York og vinnur núna hjá Íslandssjóðum, til að fara yfir alla leiðina. Frá myndun olíu djúpt í jarðlögum, í gegnum aldargamla valdabaráttu um olíulindir, og að dælunni á bensínstöðinni heima. Við ræðum hvers vegna heimsmarkaðsverð hreyfist svona hratt, hvað OPEC gerir í raun og veru, og hversu háð Ísland er þessari auðlind þrátt fyrir alla grænu orkuna okkar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Brynjólfur Stefánsson

Augun 04 Jul 2026

Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt að laga eftir tíu ára aldur. Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er að verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Einar Stefánsson

Kindur 04 Jul 2026

Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd að við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá landnámi? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Dýrmundsson, sérfræðing með doktorspróf í greininni og áratuga feril hjá Bændasamtökunum, til að fara yfir uppruna norður-evrópska stuttrófustofnsins sem íslenska féð er af og þá staðreynd að við Íslendingar höfum varðveitt stærsta erfðahópinn af honum í öllum heiminum. Ólafur segir frá forystufénu, dýrum með atferli sem finnst hvergi annars staðar á jörðinni, og fer með mig í gegnum heilt æviskeið kindarinnar allt frá fengitíð til sláturtíðar. Í lokin veltum við fyrir okkur framtíð sauðfjárræktarinnar, hvort ullin gæti leyst gerviefni af hólmi, hvernig fjörubeit dregur úr metanlosun, og hvers vegna erlendir aðilar eru farnir að sækjast eftir íslensku erfðaefni. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Ólafur Dýrmundsson

Fráveitur 04 Jul 2026

Hvað gerist eiginlega þegar maður sturtar niður? Hvert fer allt þetta vatn eiginlega? Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju Lilju Ágústsdóttur, fagstjóra vatnsmiðla hjá Veitum, til að rekja sögu fráveitunnar allt frá rómversku gyðjunni Cloacina og risastóru holræsunum í Róm, til þess hvernig Reykjavík breyttist úr opnum skólprennum og útikömrum í það kerfi sem ber okkar úrgang ósýnilega í dag. Laufey segir frá Knud Zimsen, fyrsta verkfræðingnum sem flutti hugmyndina heim og varð síðar borgarstjóri, og þeirri hörðu andstöðu sem fyrstu fráveituframkvæmdirnar mættu hjá íbúum. Við förum yfir hvernig kerfið virkar í dag varðandi sjálfrennsli, dælustöðvar, hreinsun og endum á stærstu áskorunum framtíðarinnar: hvers vegna blandað kerfi ofanvatns og skólps er vandamál, hvað Evrópusambandið krefst af okkur í þrepahreinsun, og hvernig auknir úrkomutoppar af völdum veðurfarsbreytinga setja allt kerfið á reynslu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Laufey Lilja Ágústsdóttir

Fyrri heimstyrjöldin - 2.hluti: Persónur og leikendur 04 Jul 2026

Hverjir eru karakterarnir á bak við stærstu ákvarðanirnar í fyrri heimsstyrjöldinni? Ólíkt seinni heimsstyrjöldinni, þar sem Churchill, Roosevelt, Stalín og Hitler eru okkur svo kunnir er erfiðara að festa hendur á því hverjir réðu örlögum heimsins í fyrri stríðinu. Í seinni hluta samtals míns við Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing tökum við þetta fyrir, og förum þaðan í Versalasamninginn, þann biturleika sem hann sáði í Þýskalandi, og hvernig fasisminn og nasisminn náðu rótum í þeim jarðvegi. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason

Fyrri heimstyrjöldin - Fyrri hluti: Upphaf og ástæður 04 Jul 2026

Heimsstyrjöld sem þurfti ekki að skella á, en gerði það nú samt. Í þessum þætti fæ ég til mín Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing til að fara yfir Evrópu árið 1914: stórveldin, bandalagskerfið, og hvernig morðið á ríkiserfingja Austurríkis-Ungverjalands í Sarajevo varð að heimsstyrjöld á rúmum mánuði. Við förum í skotgrafirnar á vesturvígstöðvunum, austur til Rússlands og byltingarins sem breytti gangi stríðsins, og að þeim atburðum sem á endanum drógu Bandaríkjamenn inn í átökin. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason

Borgarlínan 04 Jul 2026

Hvers vegna er Reykjavík ein af fáum borgum á Norðurlöndum sem byggði sig algerlega upp í kringum einkabílinn og hvað kostar það að breyta því núna? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólöfu Örvarsdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, og Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna, til að rekja sögu Borgarlínunnar. Hvernig svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fyrir rúmum áratug markaði fyrstu skrefin, hvers vegna skipulagsákvörðun sjöunda áratugarins um að "þar til allir fullorðnir eigi bíl" mótaði borgina sem við búum í í dag, og hvers vegna BRT-kerfi (hraðvagnakerfi) varð fyrir valinu fram yfir léttlest. Þau fara yfir hinn víðtæka misskilning að verkefnið sé "gegn einkabílnum", þegar helmingur fjármagnsins í samgöngusáttmálanum fer í raun til vegaframkvæmda og við endum á tímalínunni: hvenær fyrstu stöðvarnar opna, og hvenær Borgarlínan verður að fullu komin í gagnið. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Ólöf Örvarsdóttir og Þorsteinn R. Hermannsson

Einar Jónsson 15 Jun 2025

Einar Jónsson var fyrsti myndhöggvari þjóðarinnar, en hann var líka málari og gerði fjölmörg tvívíð verk. List hans er táknræn og stundum torskilin – og hann lifði að mörgu leyti í eigin heimi. Í þetta skiptið skoðum við hver Einar var, hvað hann vildi segja með verkunum sínum, og hvers vegna list hans vekur enn spurningar og áhuga. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Alma Dís Kristinsdóttir

Næringarfræði 15 Jun 2025

Við borðum öll. Oftar en einu sinni á dag, ef við erum heppin. En hvernig ákveðum við hvað fer ofan í okkur? Er það smekkur? Vaninn? Hráefnisverð? Eða eitthvað sem amma sagði einu sinni? Í þessum þætti ætlum við að velta fyrir okkur næringarfræði, ekki bara sem lista yfir vítamín og steinefni, heldur sem fræðigrein sem hefur mótað samfélagið, matarmenningu og jafnvel pólitík. Ég fékk Bryndísi Evu Birgisdóttur til mín, næringarfræðing sem hefur skoðað þetta frá öllum hliðum. Og við ræðum allt frá skyr og slátri yfir í fæðubót og ofgnótt. Hvað vitum við í raun um það sem við borðum? Og hvernig lærum við að borða betur án þess að fara í vitleysu? Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Bryndís Eva Birgisdóttir

Eyrun 15 Jun 2025

Eyrun eru ekki bara það sem haldast við sólgleraugun eða hvað sem við klæðum í skart. Þau eru hliðin að heimi hljóðsins. Við tökum þeim gjarnan sem sjálfsögðum hlut, en þau eru í stöðugri vinnu: greina tal, veiða ískur og melódíur, halda jafnvægi og vara okkur við hættum. Í þessum þætti skoðum við hvernig eyrun virka, hvernig þau eru byggð upp og hvað þau þurfa til að halda áfram að þjóna okkur vel. Við ræðum sögu, nútíð og framtíð eyrnanna og hvernig við getum farið betur með þetta vanmetna en ótrúlega mikilvæga líffæri. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Einar Hjaltested

Súrdeig 15 Jun 2025

Það er eitthvað dularfullt við súrdeig. Þetta lifandi efni sem þarf að næra, klappa og fylgjast með eins og það sé gæludýr. Það andar, bólgnar út og deyr ef maður sinnir því ekki. Sumir elska það, aðrir fá nældu bara við tilhugsunina. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvað súrdeig er eiginlega, hvaðan það kemur, hvernig það virkar og af hverju fólk er svona heltekið af því. Ég fékk Ragnheiði Maísól Sturludóttur til mín, sem hefur bæði brennt brauð og bakað fullkomin skorpubrauð, og við ræðum allt frá örverum og smjörklípu yfir í þolinmæði og nördaskap. Ef fólk hefur áhuga á að vita meira um súrdeig er hægt að hlusta á þættina hennar Ragnheiðar í spilara Rúv hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/surinn/36330/aqf153 Umsjón: Atli Már Steinarsson

Lungun 15 Jun 2025

Við hugsum sjaldnast um lungun – nema þegar þau bregðast. En samt eru þau okkur bókstaflega lífsnauðsynleg, öndunartakturinn sem heldur okkur gangandi alla ævi. Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að þessari líffæravél sem við öndum í gegnum, frá fyrstu andardrætti til síðasta útöndunar. Ég fékk Ólaf Baldursson til mín, lungnalækni sem hefur fylgst með þróun læknisfræðinnar á þessu sviði og veit hversu miklar breytingar hafa orðið – og hvað framtíðin gæti boðið upp á. Við ræðum byggingu lungnanna, hlutverk þeirra, hvernig við höfum farið með þau í gegnum tíðina og hvað við getum gert til að vernda þau betur. Meira um Ólaf Baldursson: Ólafur er lyflæknir og lungnalæknir, sem hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum, kennslu- og vísindastarfi auk lyfjaþróunar. Grunnvísindaverkefni sem hann hefur tekið þátt í hafa tvisvar leitt til þróunar lyfja. Hann hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala frá árinu 2009 en hefur verið í leyfi frá henni í þrjú ár. Á þeim tíma hefur hann starfað sem forstöðumaður lungna- og ofnæmislækninga á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og við verkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins hér heima, m.a. varðandi framtíðarhorfur mannafla í læknisþjónustu. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Hundar 15 Jun 2025

Við segjum oft að hundurinn sé besti vinur mannsins, en hvernig varð það eiginlega þannig? Í þessum þætti skoðum við hvernig hundar komu inn í líf okkar, hvernig þeir breyttust úr úlfum í fjölskyldumeðlimi, hvað greinir tegundir að og hvað þarf að hafa í huga þegar maður ákveður að fá sér hund. Ég fékk Helgu Finnsdóttur til mín sem veit bæði fræðilega og persónulega hvað felst í því að ala upp hunda – og við förum yfir söguna, hegðunina og ábyrgðina. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Helga Finnsdóttir

Vindorka 15 Jun 2025

Ég veit ekki með ykkur, en þegar ég sé vindmyllu þá fer ég ósjálfrátt að hugsa um Don Kíkóta. Eða kannski aðallega um vindinn sjálfan, þetta ósýnilega afl sem blæs okkur í gegnum daginn, ýtir á móti manni á leið í vinnu og lætur þakrennur syngja á haustin. Vindurinn er þarna alltaf, en við höfum tekið okkur góðan tíma í að læra að nýta hann. Og nú stendur hann í miðri orkupólitískri skotgröf, einhver vilja fleiri vindmyllur, aðrir segja þær skemma útsýni og skila litlu. Í þessum þætti sest ég niður með Karen Maríu Jensdóttur sem veit sitt hvað um vindorku og við ætlum að skoða þetta allt saman: söguna, tæknina, loftið og umræðuna. Því hvort sem manni líkar betur eða verr við myllurnar, þá er víst að vindurinn er ekki á förum. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Karen María Jensdóttir

Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 5: Endalok og eftirskjálftar 15 Jun 2025

Þegar stríðinu fer að halla undir lok berst Þýskaland á þremur vígstöðvum samtímis. Sovétmenn sækja fast að austan, bandamenn þrýsta að vestri og suðri. Berlín fellur, Hitler sviptir sig lífi, og það sem eftir stendur er rústir. Bæði í raun og í hugum fólks. Mannfallið í seinni heimsstyrjöldinni er gríðarlegt, herforingjar höfðu sín markmið, en fórnarlömbin voru milljónir, bæði hermenn og óbreyttir borgarar. Í Dresden var Kurt Vonnegut sem stríðsfangi ekki aðeins vitni að sprengjuregni heldur hluti af hópi sem þurfti að hreinsa upp borgina á eftir. Þetta varð síðar efniviður í verk hans um fáránleika stríðs og minnisleysi mannkynsins. Við lítum líka austur yfir Kyrrahafið þar sem kjarnorkusprengjurnar á Híróshima og Nagasaki marka endalokin formlega. En það eru líka endalok tveggja manna sem höfðu haft afgerandi áhrif á gang mála, bæði Roosevelt og Churchill náðu ekki að upplifa sigurinn eins og þeir vonuðust til. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason

Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 4: Eyðimerkur, kafbátar og vígvellir heimsins 15 Jun 2025

Í þessum þætti opnast stríðið enn frekar. Eyðimerkurstríðið markar þáttaskil, ekki bara fyrir Evrópu heldur líka fyrir þátttöku Bandaríkjamanna, sem nú fara að láta til sín taka í auknum mæli. Við kíkjum á herforingja eins og Marshall og Andrews, sá síðarnefndi lést reyndar í flugslysi á Íslandi, þegar flugvélin Hot Stuff fórst við Fagradalsfjall eins og kemur fram í þættinum. Áður en við förum til ársins 1944 stoppum við aðeins í Asíu og ræðum heimsmynd Japana. Hvernig þeir sáu sjálfa sig, völd sín og réttinn til útþenslu. Það er oft talað lítið um Japan og Kína í samhengi við seinni heimsstyrjöldina, en þar voru átök og grimmd sem eru engu síðri en það sem gerðist í Evrópu. Að lokum undirbúum við okkur fyrir tvær stærstu hernaðaraðgerðir stríðsins: D-dag á vesturvígstöðvunum og Bagration-aðgerð Sovétmanna í austri. Við ræðum líka hvernig kafbátar ógnuðu siglingum á Atlantshafi og gerðu verslun og birgðaflutninga að hættuspili. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason

Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 3: Vígvellir og viðsnúningar 15 Jun 2025

Í þessum þætti færist stríðið upp í loftið, bókstaflega. Orrustan um Bretland markar tímamót, þar sem litlar vélar eins og Spitfire breyta gangi sögunnar. Áður en við snúum okkur að Sovétríkjunum, stoppum við aðeins í Asíu, þar sem Japan og Kína eru í blóðugu og flóknu stríði sem heimurinn fylgist illa með. Þjóðverjar gera síðan skyndilega innrás í Sovétríkin. Churchill, sem hingað til hefur staðið nánast einn gegn Hitler, fær nú nýjan bandamann í Stalín, þó það samstarf verði flókið. Á sama tíma stíga Bandaríkin loksins inn í stríðið eftir árás Japana á Pearl Harbor. Roosevelt hafði þegar ákveðið að Þýskaland væri stærra vandamál en Japan, en þegar Hitler lýsir yfir stríði við Bandaríkin, þá er engin leið til baka. Við skoðum líka hvernig bandarískir flugmenn voru sendir til Búrma, áður en Bandaríkin voru formlega komin í stríð, til að hjálpa Bretum að halda áhrifum sínum. Stríðið er orðið alþjóðlegt, á landi, sjó og nú líka í lofti. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason

Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 2: Öxulveldin og fyrstu skrefin 15 Jun 2025

Eftir innrás Þýskalands í Pólland líður aðeins á áður en næstu stóru skref eru stigin. Stríðið er byrjað, en margir bíða. Í þessum þætti ræðum við hvernig öxulveldin mótast og hverjir standa hvar. Við kíkjum á fyrstu orrustuna á hafi úti í stríðinu, þar sem Ísland tengist atburðunum beint þó við höfum enn ekki verið hernumin. Við skoðum líka af hverju Þýskaland réðst á Noreg en þar voru það málmar, hafnir og hernaðarleg staðsetning réðu úrslitum. Og við tökum stutt stopp í Finnlandi þar sem vetrarstríðið við Sovétríkin sýndi að ójafn styrkur segir ekki alltaf alla söguna. Umsjónamaður: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason

Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 1: Aðdragandi og upphaf 15 Jun 2025

Við byrjum nýja seríu af Þú veist betur á umræðuefni sem er erfitt að tækla í 1-2 þáttum, enda urðu þeir á endanum 5. Þetta er veisla fyrir öll okkar sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni, en líka bara þau sem vilja skilja betur heiminn sem við búum í, nútíminn er skiljanlegri ef við vitum hvaðan við komum. Seinni heimsstyrjöldin byrjar ekki bara með innrás í Pólland. Hún á sér aðdraganda sem nær yfir efnahagskreppur, hugmyndafræði, nýlendustefnu og mannleg mistök. Við rennum yfir hvernig Hitler náði völdum í Þýskalandi, hvernig lýðræði breyttist í einræði á örfáum árum og hvernig þjóðarleiðtogar eins og Neville Chamberlain reyndu að halda frið með samningum sem stóðust ekki raunveruleikann. Við skoðum líka hvað var að gerast annars staðar, sérstaklega í Asíu, þar sem Japan og Kína börðust og Chiang Kai-shek var maður ársins hjá Time áður en stríðið í Evrópu var jafnvel byrjað. Umsjónamaður: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason

Bandaríkin - Fyrri hluti 24 Mar 2024

Ég sver að það var ekki endilega viljandi, en eftir smá pásu frá löndum heimsins með þætti um hjólaskautaat, höldum við áfram og virðumst nánast fara í stafrófsröð. Balkanskagi til Bandaríkjanna. Enda var vopnahléssamningur varðandi Bosníu undirritaður í Daytona í Ohio, svo tengingin er augljós. Eða hvað? Þetta land sem er svo nátengt Íslandi, hafði mikil áhrif á efnahag þjóðarinnar í seinni heimsstyrjöldinni og auðvitað menningu landsins fram eftir 20.öld og til dagsins í dag. Sama hvaða skoðun við höfum á þessu heimsveldi er ekki hægt að neita því að Bandaríkin hafa haft gríðarleg áhrif á stöðu heimsins í dag, það eru forsetakosningar vestanhafs í ár og oft líður manni eins og það muni svo skera úr um hvernig heimurinn muni þróast til framtíðar. En hvað vitum við um Bandaríkin, af hverju eru þau eins og þau eru? Það er ærið verkefni að útskýra en í næstu tveim þáttum ætlum við Silja Bára Ómarsdóttir að gera heiðarlega tilraun til að fara yfir sögu þess, stærstu atburði, núverandi ástand og hugleiðingum um framtíðina.

Bandaríkin - Seinni hluti 24 Mar 2024

Í síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um það risastóra verkefni og fyrirbæri sem Bandaríkin eru. Til upprifjunar fórum við yfir stofnun landsins árið 1776, þrælastríðið milli norðurs og suðurs en enduðum svo í kringum seinni heimstyrjöldina og þann tíma þegar Franklin Delano Roosevelt er forseti. Verkefni hans var að reisa landið við eftir seinni heimstyrjöld og mín fyrsta spurning til Silju Báru Ómarsdóttur sem er aftur komin til að fara yfir málin með okkur.

Hjólaskautaat 10 Mar 2024

Það getur verið að einhver ykkar þarna úti hafið heyrt talað um hjólaskautaat, en þetta tiltölulega óþjála orð er þýðing á enska orðinu “rollerderby”. En það getur líka vel verið að einhver hafi bara aldrei heyrt á þetta fyrirbæri, sem flokkast sem íþróttagrein og er frekar ung sem slík. Ég sá hana fyrst fyrir rúmlega 15 árum á ferðalagi í Bandaríkjunum og vissi ekki mikið þá, en fyrst það er byrjað að stunda þetta hér á landi fannst mér tilvalið að kynna mér málið betur og fékk til mín Guðnýju Jónsdóttur, en hún er ein af stofnendum Rollerderby Iceland, til að segja mér allt um íþróttina, hvaðan hún kemur og hvernig hún fer fram. Fyrir meiri upplýsingar og fræðslu er hægt að kíkja á rollerderby.is

Balkanskagi - Seinni hluti 29 Feb 2024

Við höldum áfram yfirferð okkar um Balkanskaga og til upprifjunar sögðum við skilið við Jón Óskar Sólnes þegar Slobodan Milosevic er kominn til valda, það hafa verið átök í Króatíu en þar sem við enduðum var komið að stríðinu í Bosníu. En það er þá sem hræðilegir hlutir eiga sér stað, sem setja mark sitt ekki bara á sögu þessa svæðis heldur Evrópu allrar. Enda ekki meira en 30 ár síðan og því fólk enn á lífi sem man vel eftir þessum atburðum sem erfitt er að gleyma eða sleppa tökunum af. Hvernig vinna lönd eða þjóðir úr svona áföllum, hverjar eru ástæðurnar fyrir þeim og hvað ber framtíðin í skauti sér? Við ætlum að fara yfir þessi mál og reyna að átta okkur betur á þessu öllu saman. Fyrsta spurning mín til Jóns snýst um ástæðuna fyrir því að Bosnía verður suðurpunkturinn fyrir átökin og hvort hægt sé að útskýra aðstæðurnar á skiljanlegan hátt.

Balkanskagi - Fyrri hluti 25 Feb 2024

Til þess að skilja nútíðina er mikilvægt að þekkja fortíðina. Þessi setning hefur verið mér hugleikin lengi enda finn ég hvernig ég verð meiri og meiri áhugamaður um sögu eftir því sem líður á ævina. Kannski er það partur af því að verða eldri, ég átta mig ekki almennilega á því. En hvað sem því líður þá á þessi setning vel við varðandi næstu tvo þætti af þú veist betur. Það er nefnilega svæði í suðaustur Evrópu sem er einhverjum hlustendum kunnugt en öðrum ekki. Ég hef gerst svo frægur að ferðast örlítið um þarna, þá helst í Albaníu, sem mér fannst alveg stórkostlegt land. Ég hef samt alltaf haft það á tilfinningunni að ég viti ekki nægilega mikið um löndin á Balkanskaga, hvað hefur gengið þar á í gegnum tíðina og af hverju. Því fékk ég til mín sannkallaðann sérfræðing til að leiða okkur í allan sannleikann um málið og hafði ég sjálfur mjög gaman af að hlusta. Ég vil líta á næstu þætti nánast sem sögustund, þar sem Jón Óskar Sólnes stjórnar ferðinni.

Líftækni 18 Feb 2024

Er ég einn um að finnast eins og það sé smá vor í lofti? Það er að minnsta kosti bjartara yfir og andleg líðan þjóðarinnar vonandi á uppleið í samhengi við það. En hvort sem það er sól, snjór, rok eða rigning höldum við áfram með þú veist betur og í þetta skipti er líftækni undir. Ég vil byrja á því að benda á að einn af fyrstu þáttum af Þú veist betur fjallaði um erfðir, í þeim þætti fór ég og hitti á Kára Stefánsson þar sem hann fór yfir þetta allt saman með mér. Hugarefni okkar er auðvitað tengt erfðum en er á sama tíma svo miklu meira. Gestur þáttarins er Eiríkur Steingrímsson sem hefur verið í bransanum lengi, veit meira en flest og ég er ekki frá því að eftir samtal okkar hafi ég verið þokkalega sannfærður um að viðfangsefni þáttarins er nátengt því hvernig við horfum til framtíðar. Við ætlum að fara yfir sögu þessarar greinar, hvernig samkvæmisdans erfðafræði og líftækni er ásamt því auðvitað að horfa til framtíðar og hvað gæti verið handan við hornið.

Skátar 11 Feb 2024

Við skiljum hlaupin eftir í reyknum og færum okkur yfir í næsta viðfangsefni, en það eru skátar sem taka á móti okkur núna. Þessi hreyfing eða samtök sem mörg okkar taka lítið eftir fyrr en 17.júní ár hvert þar sem við förum á fjölfarna staði og hlustum á lúðrasveitir eða förum í hoppukastala sjálf eða með þeim sem minni eru. Hjálparsveit skáta er eitthvað sem við höfum líklegast öll heyrt, við erum kannski meðvituð um að eitthvað snýst þetta nú um útiveru, hnúta hverskonar og bláa búninga. En hvað er það að vera skáti? Hvaðan koma þessi samtök og um hvað snúast þau? Er skylda að vera ávallt skáti ef þú hefur yfir höfuð verið skáti einhvertíman? Ég fékk til mín Arnór Svarfdal skáta til að segja okkur allt það helsta, við fórum yfir söguna og auðvitað þessar spurningar sem ég er nýbúinn að þylja upp.

Hlaup 04 Feb 2024

Hvað er meira við hæfi svona í byrjun árs en að velta fyrir sér hreyfingu og hvaða hreyfing sem við stundum á sér lengri sögu en hlaup. Einn fót fram fyrir annan og svo framvegis. En hlaup eru ekki bara hlaup, innan þess rúmast skokk, spretthlaup, maraþon og alls kyns mismunandi útgáfur þar á milli. Sjálfur hef ég aldrei verið mikið fyrir hlaup og kannski er það aldurinn, en eftir þennan þátt byrjaði ég að prófa mig áfram og hef gaman af enn sem komið er. Markmið þáttarins er þó ekki að koma ykkur út að skokka, heldur að pæla í þróun hlaups í gegnum árin, í hverju munurinn felst og hver framtíðin gæti verið. Það er því ekkert hlaupa prógram sem þið fáið út úr þættinum en viðmælandi okkar er samt einstaklingur sem hefur gert ófá þannig bæði fyrir sig og aðra. Arnar Pétursson, sem hefur orðið íslandsmeistari 58 sinnum hvorki meira né minna.

Taylor Swift 28 Jan 2024

Við höfum sagt skilið við viðskiptasiðferði enda geri ég ráð fyrir að við séum öll búin að líta rækilega í eigin barm og íhugað okkar eigin siðferði í leiðinni. Það er alltaf hollt, sérstaklega í byrjun nýs árs þar sem við erum umkringd eldgosum og snjóstormum. Hvað er þá betra en að kveikja á kerti og pæla aðeins í Taylor Swift? Hún var ein af manneskjum ársins hjá Time fyrir síðasta ár, er af mörgum talin vera ein stærsta, ekki bara poppstjarna, heldur manneskja heimsins sem við lifum í en hvað er svona sérstakt við hana? Hér er þó öðruvísi umfjöllun um Taylor Swift en við ættum kannski að venjast því við erum ekki að fara að hlusta á neina tónlist, heldur einungis velta henni fyrir okkur sem manneskju, sem fyrirbæri í sjálfri sér, eða phenomen eins og það myndi kallast á enskunni. Það er því ekki endilega krafa að þið séuð aðdáendur tónlistar hennar, þó auðvitað sé það bara bónus ef svo er. Til að segja okkur allt sem við þurfum að vita er mætt Ingunn Lára Kristjánsdóttir.

Viðskiptasiðfræði 21 Jan 2024

Við fögnum nýju ári og höldum áfram viskugöngu okkar á vorönn Þú veist betur. Það var ótalmargt sem fangaði athygli okkar árið 2023, vonandi verður árið 2024 ennþá skemmtilegra og fræðandi. Í þetta skiptið ætlum við að beina sjónum okkar að viðskiptasiðfræði og þar er það Ketill Berg Magnússon sem ætlar að stýra skútunni. Það er fínt að taka það fram að fræðigreinin er viðskiptasiðfræði en viðfangsefnið er viðskiptasiðferði, þessi orð munu koma fyrir sitt á hvað í þættinum en kjarnast í kringum sömu hugmynd. Við veltum fyrir okkur hvort það sé yfir höfuð hægt að kenna viðskiptasiðfræði, hvernig þessi hugtök, viðskipti og siðferði geti í raun farið saman, hvernig fræðigreinin verður til og hver sé hugsanleg ástæða þess að við virðumst heyra þessi orð meira undanfarin ár miðað við áður. Ásamt mörgu öðru auðvitað.

Eldgos 20 Dec 2023

Það hefur mikið verið í gangi á Reykjanesi síðustu ár, svo ekki sé meira sagt. Fjórða eldgosið leit dagsins ljós fyrir stuttu og mig langaði að því tilefni að henda í smá þátt um fyrirbærið sem eldgos er. Því við heyrum og sjáum margt um þetta, en hvað þýða öll þessi hugtök sem er verið að tala um? Ég ákvað því að drífa í að ganga frá viðtali sem ég tók við Sigríði Kristjánsdóttur um eldgos, en við settumst niður áður en fjórða gosið á Reykjanesi hófst svo vangaveltur í þættinum um hvað muni gerast eiga kannski ekki fullkomlega við nú þegar gos er hafið, en hvað liggur þar að baki og ástæður fyrir öllu saman gilda þó ennþá. Við ætlum að tala um flekaskil, hvort Vatnajökull sé tappi sem haldi þrýsting niðri, mismunandi hrauntegundir, sprengigos og svona mætti lengi telja. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Sigríður Kristjánsdóttir

Ásatrú 17 Dec 2023

Við höldum áfram á trúarlegum nótum en færum okkur frá kristni yfir til ásatrúar. Eins og ég nefndi í síðasta þætti þá fannst mér að minnsta kosti hjálplegt að fara aðeins yfir sögu kristni áður en við myndum kynna okkur ásatrú og þið munið heyra í þættinum að það er hálf erfitt að stoppa sig í að bera þessi tvö trúarbrögð saman. Sérstaklega þar sem kristni kom einmitt í staðinn fyrir ásatrú á Íslandi, en sú skipting var samt ekki alveg eins og maður hefði haldið, svona miðað við sögubækur. En við förum í það alltsaman í þættinum ásamt því hvernig maður iðkar ásatrú, hvað sé að finna í þeim ritum sem trúin byggir á og hvort að Loki er eins mikill prakkari og Marvel heimurinn lætur hann líta út fyrir að vera. Þetta og miklu meira í síðasta Þú veist betur þætti ársins, leiðsögumaður okkar í þetta skiptið er Hilmar Örn Hilmarsson. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Hilmar Örn Hilmarsson

Kristin trú 10 Dec 2023

Nú þegar líður að jólum og sunnudagarnir af skornum skammti langaði mig til að nýta tvo síðustu þætti ársins í trúmál. Eftir slétta viku þá sest ég niður með Hilmari Erni allsherjargoða og við ræðum ásatrú og allt sem henni tengist. En áður en ég sleppi honum frá mér þá langaði mig til að rifja upp þátt sem ég gerði um jólin 2020. Þar ræddi ég við Hjalta Hugason og Jónínu Ólafsdóttur um kristna trú, söguna og þróun í gegnum aldirnar. Þegar við Hilmar ræddum ásatrú þá tengist það eðililega kristinni trú og innleiðingu hennar á landinu svo mér fannst best að fólk hefði tækifæri á að hlusta á þáttinn um kristna trú fyrst. Þátturinn kom nefnilega út sem sérþáttur og ekki lengur hægt að hlusta á hann svo það má vel vera að fólk hafi ekki fengið tækifæri til að hlusta eða vitað af honum fyrr en nú. Ég ætla því að gefa boltann yfir á sjálfan mig fyrir rúmum 3 árum og svo heyrumst við aftur í næstu viku, þegar við ræðum ásatrú. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Hjalti Hugason & Jónína Ólafsdóttir

Steypa 03 Dec 2023

Velkomin í nýjasta þátt af Þú veist betur. Ég heiti Atli Már og í þetta skiptið ætlum við að fara yfir manngert efni, sem er bókstaflega allt í kringum okkur. Án þess veit ég ekki almennilega hvernig borgir okkar eða bæir myndu líta út. En sem betur fer þurfum við ekki að velta því lengi fyrir okkur því nema þið séuð út í göngutúr eru allar líkur á því að þið getið komið við steypu á innan við 5 sekúndum. En hvernig varð steypa til, hvernig er hún gerð og af hverju notum við svona ótrúlega mikið af henni? Til að segja okkur allt um steypuna fékk ég til mín Ólaf Wallevik sem er óhætt að segja að sé einhver mesti sérfræðingur sem við Íslendingar eigum varðandi steypu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Ólafur Wallevik

Tíska 19 Nov 2023

Það er óhætt að segja að það sé ákveðið ástand í gangi á landinu, en við reynum að halda okkar stefnu í Þú veist betur og nú er komið að tísku. Nánar tiltekið fatatísku og hvernig hún hefur þróast í gegnum tíðina. Það mætti segja að við séum að tala um ákveðna hugmyndafræði sem er erfitt að finna einhver nákvæm svör við. Það er til dæmis ólíklegt að þið hlustið á þáttinn og endið með óaðfinnanlegan fatastíl. En þó er líklegt að þið hafið að minnsta kosti betri hugmynd um hvernig þið myndið ykkar eigin fatastíl. Stíl sem er óháður hvað utanaðkomandi aðilar segja ykkur að sé algjörlega málið eða reyna að selja ykkur í gegnum alls kyns auglýsingar eða áhrifavalda. Við erum nefnilega að fikra okkur í átt að jólum, með allskonar tilboðsvikum og fleiru svo það er fínt að fara aðeins yfir þetta allt saman. Til að gera það með okkur fékk ég Rögnu Sigríði Bjarnadóttur til mín og við fórum yfir söguna, mismunandi fatastíla, hvernig hlutir komast í tísku og margt fleira. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Ragna Sigríður Bjarnadóttir

Hvalir - 2.hluti 05 Nov 2023

Nú höldum við áfram þar sem frá var horfið í yfirferð okkar um hvalina. Í síðasta þætti fórum við yfir þróunarsöguna, hvernig hvalir þróuðust úr landdýrum með fjóra fætur yfir í þau dýr sem við þekkjum í dag. En allt þetta gerðist á mörgum milljónum ára og þar sem við settum punktinn síðast vorum við að ræða gáfnafar þeirra og til dæmis þær samskiptaleiðir sem þeir nota. Við tökum upp þráðinn á þeim stað og það er aftur hún Edda Elísabet Magnúsdóttir sem ætlar að leiða okkur í allan sannleikann um hvalina. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Edda Elísabet Magnúsdóttir

Hvalir - 1.hluti 29 Oct 2023

Umræða um hvali hefur verið ofarlega á baugi síðustu mánuði, ekki að ástæðulausu. En vitum við í raun um hvað við erum að tala eða mynda okkur skoðun á? Hvað eru hvalir, hvaða dýr teljast til hvala (svarið við þeirri spurningu mun koma ykkur á óvart), hver er þróunarsaga þeirra og hvernig hegða þeir sér. Hvað gera þessi skíði sem við heyrum alltaf um og af hverju eru sumir þeirra svona svakalega stórir? Svo stórir að það er ekkert annað lifandi á jörðinni sem er stærra en þeir. Ef við tökum auðvitað út fyrir sviga hluti eins og ofursveppi og þannig fyrirbæri sem hægt er að heyra meira um í þættinum okkar um sveppi. Mig langaði til að vita meira og fylla í göt minnar eigin vanþekkingar svo Edda Elísabet Magnúsdóttir kíkti í heimsókn og við settumst niður til að fara yfir þetta allt saman. Þetta var allt svo miklu áhugaverðara og stærra en ég hafði gert mér grein fyrir svo ég varð að skipta viðfangsefninu í tvo parta. Hér kemur sá fyrri þar sem við förum yfir söguna sem nær mörg milljón ár aftur í tímann. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Edda Elísabet Magnúsdóttir

Súkkulaði 22 Oct 2023

Það sem kemur mér einna helst á óvart við umræðuefni þáttarins í þetta skiptið er hversu lengi ég var að láta mér detta það í hug. Verandi algjör súkkulaðigrís hefði þetta átt að vera efst á baugi hjá mér en svona er maður stundum mistækur. Við erum kannski á svipuðum slóðum og síðasti þáttur, enda frekar líklegast að dópamín spili eitthvað hlutverk í súkkulaðineyðslu okkar. En förum ekki nánar út í það. Sum ykkar hafa kannski orðið var við umræðu um súkkulaði á síðustu árum, hvaðan það kemur, hver græðir mest á því, er yfir höfuð til nógu mikið súkkulaði fyrir okkur öll eða erum við farin að borða eitthvað súkkulaðilíki? Öllu þessu þarf að komast til botns í, og það munum við reyna í þessum þætti. En við ætlum líka að ræða söguna, hvernig súkkulaði er gert og hversu mikið súkkulaði þarf að til eitthvað geti sagst vera súkkulaði. Kjartan Gíslason þekkir þessi mál betur en flest og ég fékk hann til að setjast niður með mér til að fara yfir þetta allt saman. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Kjartan Gíslason

Dópamín 15 Oct 2023

Það eru allar líkur á því að viðfangsefni síðasta þáttar af þú veist betur hafi áhrif á það kerfi í líkama okkar sem framleiðir dópamín. Þetta orð hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og að einhverju leyti á frekar skakkan hátt. Oft snýst þetta um hvort að hinn eða þessi hlutur, í þessu tilfelli boðefni sem verður til í okkur sjálfum, sé gott eða slæmt. Er til dæmis slæmt að dópamín verði til þegar við drekkum kaffi? Líklegast ekki, en það fer auðvitað eftir því hversu mikið kaffi við ætlum okkur að drekka. Við erum líka orðin frekar vör um hvað það er sem fer fram í líkama okkar, fáum sífellt fleiri tæki og tól til að mæla það, svo að sama skapi erum við endalaust að leitast við að vera í jafnvægi. Kannski vantar okkur hitt eða þetta og þessvegna líði okkur eins og raun ber vitni. Það hljóti að vera einhver ástæða fyrir því að ég er svona eða hinsegin, og ef ég finn ástæðuna, get ég haft áhrif á það sem er að gerast. Við erum spendýr sem rankar allt í einu við sér á tækniöld, þar sem þróunin hefur nánast keyrt yfir okkur og við skiljum ekki af hverju okkur líður allt í einu svona illa, orð eins og skjátími, símafíkn og þar fram eftir götunum voru ekki til fyrir ekki meira en 10-15 árum sem dæmi. Dópamín virðist spila stóra rullu í lífi okkar, því er kannski mikilvægt að við áttum okkur á því hvað þetta efni er, hvað það gerir og hvort við þurfum mögulega öll að fara í dópamín föstu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Þór Eysteinsson

Kaffi 08 Oct 2023

Oftar en ekki tala ég um að fyrirbæri þáttarins sé eitthvað sem sé allt í kringum okkur, svo ég held því bara áfram í þetta skiptið. Síðast var það internetið en núna er það kaffið sem við ætlum að fara yfir. Ég verð að viðurkenna að sjálfur hef ég aldrei verið mikill kaffigrís en á seinni árum drukkið meira en ég gerði áður fyrr, aldrei þó vitað nákvæmlega hvað ég sé að gera. Hvað er gott kaffi og hvernig er það gert? Í þetta skiptið förum við yfir sögu kaffis, hvaðan það kemur og hvernig samband okkar við kaffi hefur breyst í gegnum tíðina. Ég fékk til mín Sonju Grant sem kom meira að segja til mín með bolla af nýlöguðu kaffi, svo við settumst niður og fórum yfir þessi mál. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Sonja Björk Einarsdóttir Grant

Internetið 01 Oct 2023

Við notum það öll á hverjum degi, það er orðið jafn eðlilegur partur af tilveru okkar og rafmagn, jafnvel vatnsleiðslur í húsinu okkar. Þó vissulega sé ekkert internetið á rafmangs svo kannski erum við ekki að setja þessa hluti alveg á sama stað í forgangslistanum. Ég er þó ekki frá því að það sé eitthvað fólk þarna úti sem væri frekar til í að það sé vatnslaust frekar en internetlaust, því öll getum við sleppt því að fara í sturtu og drukkið bara djús, en hvað gerum við eiginlega ef við komumst ekki á internetið? Lesum bækur? Tölum saman? Förum út og veltum fyrir okkur heiminum? Allt augljóslega fjarstæðukenndar hugmyndir en sem betur fer eru litlar líkur á því að internetið hverfi í bráð. Það er samt alltaf betra að skilja hvernig einhver risastór partur af tilveru okkar virkar, hvernig kom þetta allt til og hvað er í raun og veru að gerast þegar við sendum skilaboð okkar á milli, horfum á það sem við viljum, þegar við viljum, borgum fyrir hluti, hlustum á þennan þátt í ólínulegri dagskrá, þurfum að muna hver leikarinn var í myndinni sem við sáum fyrir 23 árum síðan og svona mætti lengi telja. Internetið er ekki lengur bara tækni sem við nýtum okkur, hún er vefur sem umlykur allt samfélagið okkar. Sem ég meina ekki sem neikvæðan hlut, en það er líklegt að okkur finnist ekki mikið kóngulónnar koma sem festist í eigin vef, svo það er því fínt að vita eitthvað um okkar. Til að tala við mig um þetta alls saman er mættur Steinn Eldjárn. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Steinn Eldjárn Sigurðarson

Sjómennska 24 Sep 2023

Í síðasta þætti af Þú veist betur ræddum við ketti, kosti þeirra og galla, hvernig væri best að gera þá hamingjusama og þar fram eftir götunum. Það leiðir okkur eftir ákveðnum krókaleiðum að viðfangsefni dagsins. Mér var nefnilega einu sinni sagt að appelsínugulir kettir hefðu komið til Íslands með víkingum, því þeir væru svo miklir sjókettir. Hvort það sé satt eða ekki þá liggur beinast við að fara frá köttum, til sjómennsku. Það einfaldlega gefur augaleið. Sjómennska er nefnilega eitthvað sem ég held að við höfum öll hugmynd um hvað sé, hvort sú hugmynd sé sú sama á milli okkar allra er frekar ólíklegt enda eru frekar litlar líkur á því að við höfum nokkurtíman stundað sjómennsku sjálf. En þó eru allar líkur á því að við höfum einhverja tengingu, hvort sem það er í gegnum fjarskyldan frænda eða bara foreldra okkar. Sjómennska og fiskveiðar eru okkur í blóð borin, annað væri í raun stórfurðulegt verandi eyja út á miðju Atlantshafi. En hvað þýðir það að vera sjómaður, hvað hefur það þýtt í gegnum tíðina og hvað hefur breyst varðandi sjómennsku á öllum þessum árum síðan fólk kom til þessa lands. Til að svara þessu hef ég fengið til mín Valmund Valmundsson og Hólmgeir Jónsson sem þekkja þetta inn og út, svo við settumst niður og þeir leyfðu mér að spyrja sig eins og landkrabbinn sem ég er. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælendur: Valmundur Valmundsson og Hólmgeir Jónsson

Kettir 17 Sep 2023

Eftir tvo þætti um strengjafræði held ég að það sé fínt fyrir okkur að líta í nærumhverfið og velta fyrir okkur því dýri sem er í miklum samskiptum og samvistum við manninn, hefur verið það í háa herrans tíð og verður líklegast að eilífu. Við höfum áður fjallað um alls kyns dýr, þar á meðal refinn og hrafninn en nú langaði mig til að líta okkur nær og pæla aðeins í kettinum. Því er þó öðruvísi farið en með hin tvö dýrin að í þessu tilfelli er hér á ferðinni dýr sem við getum átt, séð um, búið með eða upplifað í nærumhverfi okkar. Að þeim sökum er þátturinn í dag bæði um hvernig dýr kötturinn sé, en líka hvernig maður sér um kött eða hagar sér í kringum hann. Það er til fólk sem segist hata ketti, sem mér reyndar finnst frekar furðuleg afstaða hjá fullorðnu fólki að hafa. Þér þarf ekki að líka við þá, en að hata eitthvað dýr bara af því að það er eins og það er hljómar aðeins of mikið í mín eyru eins og Kjartan í Strumpunum. En það er líka hægt að vera forvitið um eitthvað sem þú fílar ekki, svo leggjum af stað, hér blandast fortíð, nútíð og framtíð í einn graut en það er hún Sólrún Barbara Friðriksdóttir sem ætlar að vera fararstjóri í þetta skiptið. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Sólrún Barbara Friðriksdóttir

Strengjafræði - 2.hluti 10 Sep 2023

Í síðasta þætti byrjuðum við á sögu strengjafræðinnar með honum Friðriki Frey Gautasyni og enduðum á þessum blessuðu víddum. Undirstaðan í strengjafræðinni er að þú þarft að vera með ákveðið margar víddir, en til að fá eitthvað út úr kenningunni, til dæmis öreindarfræðilíkön þá þarftu svo að byrja á að losa þig við víddirnar. En hvernig skrifaru niður vídd? Við byrjum á þessari spurningu en förum svo yfir í hvað það er sem strengjafræðingar í dag vinna helst við, hvaða vandamál er verið að leysa og hvernig framtíðin gæti litið út. Við munum tala um svarthol og upplýsingagátuna svokölluðu (á ensku er það information paradox ef þið viljið leggja í ferðalag með google frænda), hulduefni og hulduorku svo það er nóg af gúmmelaði sem kemur hérna á eftir. En byrjum á því að tala um strengina og hvernig við tæklum þessar 11 víddir. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Friðrik Freyr Gautason

Strengjafræði - 1.hluti 03 Sep 2023

Við erum sífellt að reyna að skilja hlutina í kringum okkur betur. Hvort sem það er með athugunum, tilgátum, kenningum eða tilraunum viljum við vita af hverju heimurinn í kringum okkur er eins og hann er. Því manneskjan er hugsanlega eina dýrategundin sem á oft erfitt með að upplifa án þess að spyrja af hverju. Okkur hefur gengið frekar vel að svara þessari spurningu í gegnum tíðina, en höfum tekið gríðarlegt stökk á síðustu 100 árum eða hér um bil. Ég hef áður forvitnast um hluti eins og eðlisfræði, skammtafræði, svarthol, stærðfræði og kjarnorku svo einhver dæmi séu nefnd, en það er ein fræðigrein sem sat eftir. Og það var sú fræðigrein sem gerir tilraun til að svara sumum af erfiðustu spurningunum sem við höfum, hvað er það sem gerist við mikla hvell og hvað á sér eiginlega stað inn í svartholum? Mér finnst vert að benda á að auðvitað er hægt að hlusta á fyrrnefnda þætti til að glöggva sig á alls kyns hlutum sem munu líklegast koma sér vel þegar hlustað er á fyrstu tvo þætti nýrrar seríu af Þú veist betur, en þó strengjafræðin sé vissulega snúið viðfangsefni reyndi ég að nálgast og bera efnið fram án þess að það þyrfti að undirbúa sig mikið fyrst. En við skulum öll átta okkur á því að hér er alls ekki skrýtið eða vandræðalegt að skilja ekki, þættirnir tveir gera næstum þá kröfu að við segjum skilið við það sem við héldum að við vissum og opnum hugann fyrir einhverju sem satt best að segja getur vel hljómað eins og vísindaskáldskapur. Eitt lykilorð áður en við byrjum, hið viðtekna líkan (standard model) er eitthvað sem verður nefnt nokkuð oft. Strengjafræðin er grein sem reynir að sameina þyngdarfræði og skammtafræði, sem eiga ekki gott með að tala saman, á hátt sem opnar svo fyrir möguleikann að útskýra hlutina sem ég nefndi áður. Ef þið eruð ekki ringluð ennþá, búið ykkur undir að heyra um víddir sem þið vissuð ekki að gætu verið til, úr hverju rafeindir, róteindir og nifteindir eru búnar til úr og hvernig þegar öllu er á botninn hvolft, erum við öll hugsanlega bara strengir titrandi á ólíkum tíðnum. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Friðrik Freyr Gautason

Sveppir 07 May 2023

Jæja mín kæru, nú er komið að síðasta þætti í þessari seríu af Þú veist betur sem er númer 95 í heildina hvorki meira né minna. En í sumar ætlum við Ingvar Þór að koma með aðra seríu af Þráðum þar sem við lítum í baksýnisspegilinn, rifjum upp áhugaverð mál og gröfum í kistunni að efni sem hefur ekki heyrst í langan tíma. Því þarf athyglin að færast yfir á það verkefni í bili. Þú veist betur heldur svo auðvitað áfram næsta vetur, svo engar áhyggjur, við höldum áfram að fræðast um alls kyns hluti eftir smá pásu. En lokaþátturinn í þetta skiptið er heldur betur forvitnilegur. Það er oft talað um sveppi í nútímasamfélagi, þá kannski oftast myglusveppi og hvimleiðar afleiðingar hans. Nú eða fótsveppi, sveppasýkingar, þar fram eftir götunum. Svo mér fannst halla töluvert á þessa ótrúlegu lífveru, sem sinnir svo mikilvægu hlutverki í lífi okkar, hvort sem við vitum af því eða ekki. Það er nóg að nefna pensilín til að benda á hlutverk hans í sögu okkar. Svo til að kafa aðeins dýpra, fara undir yfirborðið, bókstaflega, fékk ég til mín Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur, sem þekkir sveppina inn og út til að leiða okkur í gegnum allan sannleikann um sveppi, við byrjum auðvitað á sögunni og þræðum okkur svo í átt að virkni þeirra og gerð. En áður en við leggum af stað, heyrum við kynningu frá viðmælandanum sjálfum. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Gervigreind 2.hluti 30 Apr 2023

Í síðasta þætti hófumst við handa við að reyna að læra meira um gervigreind, sögu hennar, sem nær aftur á sautjándu öld ef við hugsum til vélrænnar sjálfvirkni einhverskonar. Að taka aðferðir eða aðgerðir og setja yfir í sjálfvirkni. Á nítjándu öld byrjum við svo að ímynda okkur svona vél, þ.e. sem við getum útskýrt fyrir hvað eigi að gera, og hún framkvæmir. Þetta er að eiga sér stað löngu áður en við finnum upp tölvur eins og við þekkjum þær í dag. En samofið allri þessari umræðu um sögu og fram að nútímanum og þeirri gervigreind sem við þekkjum í dag er dýpri umræða. Því það er auðvelt að tala um gervigreind einfaldlega út frá tæknilegu sjónarhorni, hvað hún geti gert fyrir vinnumarkaðinn eða álíka bein hagfræðileg áhrif. Þá vill oft gleymast að kjarni gervigreindar er þverfaglegur. Mest af því efni sem þjálfað er á, er afrakstur hugvísinda. Samskipti við gervigreindina eru í skrifuðu máli eða í samræðum, sem mun verða meira og meira á forsendum manneskjunnar en ekki tækninnar. Þessvegna er mikilvægt að skilningurinn á því hvernig við högum okkur gríðarlega mikilvægur. Spurningin ætti kannski frekar að vera hvernig við getum sameinað hugvísindi, tækni og vísindi enn frekar. Sem leiðir í raun að byrjuninni á samtali mínu við Hannes Högna í þessum þætti, þar sem ég spyr út í hinar mismunandi tegundir greindar hjá okkur sjálfum. Tilfinningagreind til dæmis, hvernig útfærum við hana? Hugtök eins og gott og illt, sem geta oft verið byggð á trúarlegum grunni. Hvernig nálgumst við svona hugtök og kennum gervigreindinni hvað þau þýða? Umsjón: Atli Már Steinarsson

Gervigreind - 1.hluti 23 Apr 2023

Eftir því sem líður á vorið og veturinn lýtur í lægra haldi þá raðast efnin sem við erum að tækla í Þú veist betur upp á nokkurnveginn þann hátt sem ég hugsaði mér. Því viðtalið sem við ætlum að byrja að hlusta á í þessum þætti var tekið upp í janúarlok árið 2023. Sem undir öllum venjulegum kringumstæðum myndi teljast sem frekar stuttur tími, verandi apríl þegar þátturinn kemur loks út en í heimi gervigreindar getur, eins og raun ber vitni, gríðarlega mikið gerst á ekki lengri tíma en 1-2 mánuðum. En mér fannst mikilvægt að undirbúa jarðveginn, því hvernig getum við talað um gerviGREIND, án þess að pæla aðeins í heilanum og hvað hann gerir? Hvernig getum við velt því fyrir okkur hvort að tölva sé með mannlega eiginleika án þess að pæla í heimspeki og þeirri aldargömlu spurningu um hver við séum í raun og veru, og hvað það sé að vera mannleg? Þar á milli höfum við líka pælt í hröfnum og Frakklandi, en það er líka bara til þess að hugsa um eitthvað annað en risastóru spurningarnar. En loks endum við hér, við þröskuldinn á umræðuefni sem er líklegast ein af stærstu spurningum okkar tíma. Gervigreind er allt í kringum okkur, og hefur verið í dágóðan tíma en það er kannski ekki fyrr en fyrst núna þar sem kraftur hennar skín virkilega í gegn og rödd hennar byrjar að heyrast í gegnum allt suðið. Ég fékk til mín Hannes Högna Vilhjálmsson til að lýsa inn í myrkrið með okkur. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Tengd hlaðvörp